Jurgen Klopp, þjálfari Borussia Dortmund í Þýskalandi, segist hafa áhuga á því að þjálfa í ensku úrvalsdeildinni í framtíðinni.
Þessi 47 ára gamli þjálfari er einn sá besti í bransanum en hann hefur unnið þýsku deildina tvisvar með Dortmund auk þess sem hann kom liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á síðasta ári.
Hann hefur verið orðaður við ensku úrvalsdeildina síðustu ár en hann hefur áhuga á því að þjálfa þar í framtíðinni.
,,Ég held að England sé eina landið sem ég ætti að starfa í fyrir utan Þýskaland. Það er eina landið þar sem ég þekki tungumálið og það er það sem skiptir mestu í vinnunni," sagði Klopp.
Athugasemdir