Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   lau 22. nóvember 2014 14:28
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: KA Sport 
Halldór Hermann í KA (Staðfest)
Halldór Hermann er genginn til liðs við KA.
Halldór Hermann er genginn til liðs við KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Hermann Jónsson skrifaði í dag undir samning við KA, en hann kemur til félagsins frá Val. Þetta kom fram á heimasíðu félagsins rétt í þessu.

Þessi þrítugi miðjumaður er uppalinn hjá Fjarðabyggð og spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir austan sumarið 2001.

Þaðan hélt hann til Fram, þar sem hann stimplaði sig inn sem lykilmaður og spilaði 141 leik í deild og bikar.

Á afstöðnu sumri lék Halldór Hermann síðan fyrir Val, en hann á að baki tæplega 300 leiki í efstu deild á Íslandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner