Fyndið augnablik átti sér stað á æfingu Real Madrid í gær þegar leikmenn voru í reitabolta.
Eins og knattspyrnumenn vita er ansi vinsælt að reyna að klobba aðra leikmenn þegar reitabolti er spilaður og eru flestir ansi varir um sig í leiknum.
Sami Khedira ætlaði að vera sniðugur og reyndi að klobba sjálfan Cristiano Ronaldo í reitnum. Það tókst að sjálfsögðu ekki, og Ronaldo skammaði Þjóðverjann fyrir að dirfast að reyna þetta!
Athugasemdir