Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. nóvember 2014 19:37
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Wilshere skallaði Fellaini í hökuna
Mynd: Getty Images
Mikil dramatík átti sér stað í leik Arsenal og Manchester United í kvöld en Jack Wilshere og Marouane Fellaini áttust við á miðsvæðinu.

Það er mikill hiti í leikjum þessara liða en þráðurinn hjá þessum leikmönnum er ansi stuttur.

Fellaini var þó töluvert rólegri en Wilshere í kvöld en enski landsliðsmaðurinn var brjálaður á honum eftir um það bil hálftíma leik.

Wilshere skallaði þá Fellaini en hæðarmunurinn er þó mikill á leikmönnunum og fékk því hakan á Fellaini að finna aðeins fyrir því. Fellaini var eðlilega brugðið og áttaði sig ekki alveg á því sem var að gerast.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner