Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. nóvember 2014 17:50
Arnar Geir Halldórsson
Rússland: Ragnar og félagar í 2.sætið
Ragnar snýtti Doumbia og félögum í dag
Ragnar snýtti Doumbia og félögum í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmiðverðirnir Ragnar Sigurðsson og Sölvi Ottesen léku báðir allan leikinn fyrir lið sín í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.

Ural 1-3 Rubin Kazan
0-1 Karakdeniz (´13)
0-2 Portnyagin (´62)
0-3 Ozdoev (´64)
1-3 Gogniev (´77)

Sölvi og félagar í FC Ural eru í vandræðum og þau héldu áfram í dag þegar liðið tapaði 3-1 fyrir Rubin Kazan á heimavelli. Ural eru í 13.sæti með 10 stig en 16 lið leika í deildinni.

Krasnodar 2-1 CSKA Moskva
1-0 Ari (´4)
2-0 Ari (´6)
2-1 Roman Eremenko (´14)

Ragnar og félagar unnu hinsvegar frábæran 2-1 sigur á stjörnum prýddu liði CSKA Moskva. Með sigrinum fór Krasnodar uppfyrir CSKA í 2.sæti deildarinnar en annað stjörnum prýtt lið, Zenit frá Pétursborg, er með örugga forystu á toppnum.
Athugasemdir
banner
banner