Barcelona 5 - 1 Sevilla
1-0 Lionel Andres Messi ('21 )
1-1 Jordi Alba ('47 , sjálfsmark)
2-1 Neymar ('49 )
3-1 Ivan Rakitic ('65 )
4-1 Lionel Andres Messi ('72 )
5-1 Lionel Andres Messi ('78 )
1-0 Lionel Andres Messi ('21 )
1-1 Jordi Alba ('47 , sjálfsmark)
2-1 Neymar ('49 )
3-1 Ivan Rakitic ('65 )
4-1 Lionel Andres Messi ('72 )
5-1 Lionel Andres Messi ('78 )
Lionel Messi var eins og konungur í ríki sínu í kvöld er Barcelona fór illa með Sevilla á Nou Camp. Messi bætti markametið í spænsku deildinni og gerði þrennu.
Messi kom Börsungum yfir á 21. mínútu með stórkostlegu aukaspyrnumarki áður en Jordi Alba varð fyrir því óláni að skora í eigið net í byrjun síðari hálfleiks.
Neymar kom Barcelona yfir tveimur mínútum síðar og Ivan Rakitic skoraði þá gegn sínum gömlu félögum.
Röðin var svo aftur komin að Messi sem bætti markametið með öðru marki sínu í leiknum og svo fullkomnaði hann frábært kvöld með þriðja marki sínu.
Lokatölur 5-1 Barcelona í vil en liðið er í öðru sæti með 28 stig, tveimur stigum á eftir Real Madrid.
Athugasemdir