Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. nóvember 2017 23:05
Arnar Geir Halldórsson
Conte við blaðamenn: Þið verðið að hjálpa okkur
Conte hundóánægður með leikjaálagið
Conte hundóánægður með leikjaálagið
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, stjóri Chelsea, hafði engan áhuga á að fagna góðum 0-4 sigri á Qarabag í Meistaradeild Evrópu í kvöld þar sem hann var strax kominn með hugann við deildarleik gegn Liverpool næstkomandi laugardag.

Chelsea átti ekki í miklum vandræðum með Qarabag en Conte stillti engu að síður upp mjög sterku byrjunarliði.

„Fólk verður að fá að heyra kvartanirnar okkar, þið verðið að hjálpa okkur. Fjölmiðlar verða að leggja áherslu á hversu skrýtið þetta ástand er."

„Eins og þið vitið vel er enska deildin mjög erfið. Það eru sex topplið að berjast um titilinn."

„Ég vil ekki kvarta en nú þurfum við að ferðast í rúmlega fimm klukkutíma og fá einn dag í hvíld og svo einn dag til að undirbúa okkur fyrir leik gegn Liverpool. Þetta er í annað skiptið á innan við mánuði sem við lendum í þessari aðstöðu fyrir risastóran deildarleik, það er ekki í lagi,"
segir Conte.

Þar vísar hann til þess þegar Chelsea mætti Man City á laugardegi eftir að hafa leikið útileik gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni á miðvikudegi.
Athugasemdir
banner
banner