Jólin koma snemma hjá Víkingum en í dag samdi félagið við Sölva Geir Ottesen.
„Við áttum fund með Sölva í sumar, áður en hann fór til Kína. Þetta hefur verið í deiglunni lengi. Ég er stoltur af framgangi stjórnarinnar í því að gefast ekki upp í þessu máli. Sölvi átti marga aðra möguleika en Víkingshjartað sló sterkast," segir Logi Ólafsson, þjálfari Víkinga.

„Mér finnst stórmannlegt af Sölva að hafa tekið þessa ákvörðun. Mér finnst þetta skemmtileg yfirlýsing frá félaginu um það hvert það vill stefna."
Í einum leikmanni eru Víkingar að fá magnaðan hafsent, leiðtoga og reynslubanka.
„Það vantaði aðeins upp á það að stoppa lekann á síðasta tímabili. Við vorum að fá á okkur of mörg mörk. Svo er engum blöðum um það að fletta að það vantaði leiðtoga inn á völlinn. Sölvi er maður sem menn geta hallað sér að og fengið stuðning frá þegar á bjátar."
Athugasemdir