Sex leikjum er nýlokið í Meistaradeild Evrópu þar sem óvænt úrslit litu dagsins ljós í Sviss þegar Man Utd heimsótti Basel í A-riðli.
Michael Lang tryggði heimamönnum sigur með marki á lokamínútu venjulegs leiktíma en það reyndist eina markið í bragðdaufum leik.
Úrslitin þýða að Man Utd er ekki gulltryggt með sæti í 16-liða úrslitum þó liðið sé vissulega í vænlegri stöðu fyrir lokaumferðina en eini möguleikinn á að liðið komist ekki áfram er að þeir tapi með sex mörkum fyrir CSKA Moskva á Old Trafford í lokaumferðinni.
Það var svo sannarlega ekki bragðdaufur leikur í París þar sem heimamenn gjörsamlega niðurlægðu Skotlandsmeistara Celtic þó þeir grænklæddu hafi komist í 0-1. Lokatölur 7-1 fyrir PSG.
Frakkarnir Kevin Gameiro og Antoine Griezmann tryggðu Atletico Madrid afar mikilvægan 2-0 sigur á Roma en á sama tímu skildu Juventus og Barcelona jöfn, 0-0.
Úrslit og markaskorarar kvöldsins.
A-riðill
CSKA 2 - 0 Benfica
1-0 Georgi Schennikov ('13 )
1-1 Jardel ('56 , sjálfsmark)
Basel 1 - 0 Manchester Utd
1-0 Michael Lang ('89 )
B-riðill
Anderlecht 1 - 2 Bayern
0-1 Robert Lewandowski ('51 )
1-1 Sofiane Hanni ('63 )
1-2 Corentin Tolisso ('77 )
Paris Saint Germain 7 - 1 Celtic
0-1 Moussa Dembele ('2 )
1-1 Neymar ('9 )
2-1 Neymar ('22 )
3-1 Edinson Cavani ('28 )
4-1 Kylian Mbappe ('35 )
5-1 Marco Verratti ('75 )
6-1 Edinson Cavani ('79 )
7-1 Dani Alves (´80)
C-riðill
Qarabag 0 - 4 Chelsea
0-1 Eden Hazard ('21 , víti)
0-2 Willian ('36 )
0-3 Cesc Fabregas ('73 , víti)
0-4 Willian ('85 )
Rautt spjald:Rashad Sadigov, Qarabag ('19)
Atletico Madrid 2 - 0 Roma
1-0 Antoine Griezmann ('69 )
2-0 Kevin Gameiro ('85 )
Rautt spjald:Bruno Peres, Roma ('83)
D-riðill
Juventus 0 - 0 Barcelona
Sporting 3 - 1 Olympiakos
1-0 Bas Dost ('40 )
2-0 Bruno Cesar ('43 )
3-0 Bas Dost ('66 )
3-1 Vadis Odjidja ('86 )
Athugasemdir