Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 22. nóvember 2017 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Notaði dróna og faldar myndavélar í njósnir um mótherja
Gremio fagnar marki.
Gremio fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Brasiíska liðið Gremio hefur verið að njósna um andstæðinga sína með öllum tiltækum ráðum. Þetta segir ESPN í Brasilíu.

Gremio, sem hefur tvisvar orðið meistari í Brasilíu, réði einstakling til að mynda æfingar hjá andstæðingum sínum, bæði opnar og lokaðar æfingar. Málið hefur verið rannsakað undanfarna mánuði.

Einstaklingurinn sem Gremio réði notaði dróna, sem og myndavélar sem hann faldi í trjám, byggingum og í veggjum. Hann sagði síðan félaginu frá því sem hann komst að um andstæðinga s.s. byrjunarliðum, leikkerfum og öllum því sem er þar á milli.

Í síðustu viku náðu fréttamenn ESPN Brasil tali af njósnaranum nálægt æfingasvæði argentíska liðsins Lanus, sem Gremio mætir í tveggja viðureigna úrslitaleik í Copa Libertadores keppninni.

Aðspurður út í það hvort han væri í vinnu hjá Gremio sagði hann: „Ég vinn ekki, ég tek bara myndir."

Enn hefur ekki fengist staðfest hver refsingin verður eða hvort Gremio fær refsingu yfir höfuð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner