Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 22. nóvember 2017 00:18
Elvar Geir Magnússon
Skoraði tvö og fékk svo skiptingu til að ná fæðingu sonar síns
Ryan Colclough.
Ryan Colclough.
Mynd: Getty Images
Ein stutt en afskaplega falleg saga úr ensku C-deildinni.

Wigan Athletic er í harðri baráttu um að komast upp í B-deildina, liðið vann 3-0 sigur gegn Doncaster Rovers.

Þegar hinn 22 ára Ryan Colclough hafði skorað tvö mörk í leiknum var hann tekinn af velli eftir aðeins 60 mínútur. Áhorfendur vissu ekki ástæðuna fyrir því að hann hljóp strax inn í göngin en fékk sér ekki sæti á bekknum.

Ástæðan var sú að kærasta Colclough var að fæða barn þeirra. Skiptingin gerði það að verkum að Colclough náði í snatri á fæðingadeildina og sá son sinn koma í heiminn.

Colclough hélt svo á stráknum, enn í treyjunni.


Athugasemdir
banner
banner
banner