Craig Bellamy, fyrrum landsliðsmaður Wales, hrósaði Adam Johnson eftir að hann skoraði sigurmark Sunderland í 1-0 sigrinum í grannaslag gegn Newcastle.
Bellamy, sem lék með Johnson hjá Manchester City á sínum tíma, segir að kantmaðurinn knái geti þó gert miklu betur.
Bellamy, sem lék með Johnson hjá Manchester City á sínum tíma, segir að kantmaðurinn knái geti þó gert miklu betur.
,,Miðað við þá hæfileika sem hann er með, þá hefur hann ekki nærri því náð fram þeirri frammistöðu sem hann getur," sagði Bellamy.
,,Hæfileikalega séð var hann algerlega frábær þegar hann kom fyrst til Manchester City og ég var þar. Hann er virkilega góður strákur og frábær manneskja."
,,Ég fylgist alltaf með honum og myndi endilega vilja sjá hann gera vel. Hann gæti náð langt."
Athugasemdir