David Silva er sannfærður um að hann geti haldið áfram að skora fleiri mörk fyrir Manchester City á meðan framherjar liðsins eru meiddir.
Spænski landsliðsmaðurinn hjálpaði City til 3-0 sigurs gegn Crystal Palace með tveimur mörkum á laugardaginn, og vill hann bæta við mörkum í safnið.
Spænski landsliðsmaðurinn hjálpaði City til 3-0 sigurs gegn Crystal Palace með tveimur mörkum á laugardaginn, og vill hann bæta við mörkum í safnið.
,,Ég gat skorað tvö mörk og hjálpað liðinu, svo ég er mjög ánægður," sagði Silva við City TV.
,,Án framherja verðum við að leggja aðeins meira á okkur til að skora, og við gerðum það, líkt og í síðasta leik."
,,Mér finnst gaman að spila á miðjunni og þegar ég spila þar reyni ég að skora mörk. Vonandi get ég haldið því áfram."
Athugasemdir