Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. desember 2014 07:00
Alexander Freyr Tamimi
Hummels: Við höfum verið ömurlegir
Mats Hummels.
Mats Hummels.
Mynd: Getty Images
Mats Hummels, varnarmaður Borussia Dortmund, segir að liðið hafi verið ömurlegt á tímabilinu.

Dortmund er á botni þýsku Bundesligunnar fyrir vetrarfríið, en liðið tapaði 2-1 gegn Werder Bremen á laugardag.

,,Það er frekar ótrúlegt að við séum svona ömurlegir," sagði Hummels við blaðamenn.

,,Það er ekkert hægt að ábyrgjast að þetta verði betra. Það er bara ekki hægt. Við höfum spilað eins illa og hægt er að ímynda sér og áhyggjurnar eru miklar."

,,Við eigum skilið að vera þarna niðri eftir þessa frammistöðu. En vonandi verður þetta betra þegar allir leikmenn koma til baka."

Athugasemdir
banner
banner
banner