Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 22. desember 2014 07:30
Alexander Freyr Tamimi
Simeone: Við þurftum Griezmann
Simeone er ánægður með Griezmann.
Simeone er ánægður með Griezmann.
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, segir að liðið hafi þurft á leikmanni á borð við Antoine Griezmann að halda.

Griezmann gekk til liðs við Spánarmeistarana frá Real Sociedad í sumar og byrjaði erfiðlega í höfuðborginni, en hann skoraði þrennu í 4-1 sigri Atletico gegn Athletic Bilbao í gærkvöldi.

,,Athletic Bilbao var gott í fyrri hálfleik en í þeim seinni vorum við mjög sterkir og ákafir," sagði Simeone.

,,Griezmann var sá leikmaður sem við þurftum í liðið. Hann er öðruvísi, og við höfum tekið eftir hans erfiðisvinnu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner