Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. desember 2014 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Terry: Matic er í öðrum gæðaflokki
John Terry er mjög ánægður með framlag Nemanja Matic.
John Terry er mjög ánægður með framlag Nemanja Matic.
Mynd: Getty Images
John Terry fyrirliði Chelsea var ánægður með sigur toppliðsins á útivelli gegn Stoke City.

Chelsea er með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar eftir sigurinn, meðan Stoke situr í 13. sæti.

,,Þetta er mjög erfiður völlur en mark snemma í leiknum gerði okkur lífið einfaldara og við stjórnuðum leiknum frá upphafi til enda," sagði Terry sem skoraði á 2. mínútu.

,,Þetta var mikilvægur sigur í toppbaráttunni og við hugsum aðeins um einn leik í einu."

Nemanja Matic var frábær í leiknum og fékk 9 í einkunn frá Goal.com. Terry segir serbneska miðjumanninn vera í öðrum gæðaflokki.

,,Matic er í öðrum gæðaflokki. Hann er vinnusamur, stjórnar miðjunni og tekur stundum á rás upp völlinn og virðist óstöðvandi."
Athugasemdir
banner
banner
banner