Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 23. janúar 2017 22:00
Kristófer Kristjánsson
Bruce til í að selja McCormack
Ross McCormack
Ross McCormack
Mynd: Getty Images
Steve Bruce er tilbúinn að selja framherjann Ross McCormack frá Aston Villa en þeir eru ekki miklir mátar þar sem McCormack hefur misst af mörgum æfingum undanfarið og er Bruce allt annað en sáttur við það.

McCormack var ekki í leikmannahóp Villa sem gerði 2-2 jafntefli við Preston um helgina eftir að hafa misst af fleiri en einni æfingu í vikunni á undan.

Eins og Fótbolti.net greindi frá um helgina voru afsakanir hans skrautlegar og nú síðast gat hann ekki mætt á æfingu þar sem hliðið fyrir utan húsið hans var bilað.

McCormack kom til Villa í sumar, frá Fulham en honum líður ekki vel í Birmingham, þar sem Villa er staðsett og vill hann flytja aftur til London.

Villa hefur ekki fengið formlegt tilboð enn þá en félagið er reiðubúið að leyfa honum að fara.
Athugasemdir
banner
banner