Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 23. janúar 2017 13:18
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Blikar.is 
Daði Rafns aðstoðar Sigga Ragga (Staðfest)
Daði er til hægri á þessari mynd.
Daði er til hægri á þessari mynd.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Sigurður Ragnar Eyjólfsson var í morgun staðfestur sem þjálfari kvennaliðs Jiangsu Suning sem leikur í úrvalsdeildinni í Kína.

Á blikar.is hefur verið staðfest að Daði Rafnsson muni verða hans aðstoðarþjálfari.

Daði hefur þjálfað hjá yngri flokkum Breiðabliks frá árinu 2007 og var yfirþjálfari yngri flokka frá 2012-2016.

„Það hefur verið ótrúlega gefandi að fá að taka þátt í starfi Breiðabliks undanfarin áratug. Ég er stoltur af afrekum alls okkar fólks og því að við eigum svo marga glæsilega fulltrúa víða um heim. Hér hefur maður kynnst mörgu góðu fólki og það er ljúfsárt að kveðja Fífuna í bili," segir Daði við blikar.is.

„Í Kína gefst okkur spennandi tækifæri til að vinna með leikmönnum í hæsta gæðaflokki og öll aðstaða er til fyrirmyndar. Það er frábært að horft er til Íslands eftir þjálfurum sem og leikmönnum og við hlökkum til að takast á við verkefnið."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner