Hull er að reyna að fá kantmanninn Lazar Markovic í sínar raðir á láni frá Liverpool.
Hinn 22 ára gamli Markovic hefur verið í láni hjá Sporting Lisabon síðan í sumar.
Markovic hefur ekki náð að festa sig í sessi í Portúgal og hann er nú á leið aftur til Englands.
Marco Silva, nýráðinn stjóri Hull, vonast til að landa Markovic en hann er að safna liði fyrir fallbaráttuna sem er framundan.

Markovic kom til Liverpool frá Benfica á 20 milljónir punda árið 2014 en á síðasta tímabili var hann í láni hjá Fenerbahce.
Athugasemdir