Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. janúar 2017 17:23
Magnús Már Einarsson
Lazar Markovic til Hull (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hull hefur fengið kantmanninn Lazar Markovic á láni frá Liverpool út þetta tímabil.

Hinn 22 ára gamli Markovic hefur verið í láni hjá Sporting Lisabon síðan í sumar.

Markovic hefur ekki náð að festa sig í sessi í Portúgal og hann er nú á leið aftur til Englands.

Markovic kom til Liverpool frá Benfica á 20 milljónir punda árið 2014 en á síðasta tímabili var hann í láni hjá Fenerbahce.

Serbinn á að reyna að hjálpa Hull í fallbaráttunni en liðið er í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 16 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.



Athugasemdir
banner