Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. janúar 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Leiknir R. fær Emil og Ingvar frá FH (Staðfest)
Ingvar Ásbjörn er kominn aftur í Leikni.
Ingvar Ásbjörn er kominn aftur í Leikni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leiknir R. hefur fengið Emil Stefánsson og Ingvar Ásbjörn Ingvarsson til liðs við sig frá FH.

Emil og Ingvar eru báðir uppaldir hjá FH en þeir eiga ekki leik að baki í Pepsi-deildinni.

Emil er 22 ára gamall hægri bakvörður en hann hefur undanfarin þrjú tímabil verið í láni hjá Fjarðabyggð.

Hinn 21 árs gamli Ingvar þekkir til hjá Leikni því hann var á láni hjá liðinu í fyrra.

Ingvar spilaði 18 leiki í Inkasso-deildinni með Leikni síðasta sumar en árið 2015 var hann í láni hjá Fjarðabyggð. Ingvar getur leikið bæði í vinstri bakverði og á kanti.

Báðir leikmennirnir voru með Leikni gegn Þrótti í Reykjavíkurmótinu á laugardaginn en Ingvar skoraði fyrra markið þar.

Leiknir hefur einnig fengið markvörðinn Hrólf Vilhjálmsson í sínar raðir en hann hefur undanfarin ár leikið með Erninum í 4. deild.
Athugasemdir
banner
banner