Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 23. janúar 2017 13:07
Magnús Már Einarsson
Mason byrjaður að tala um atvikið í gær
Mason borinn af velli í gær.
Mason borinn af velli í gær.
Mynd: Getty Images
Ryan Mason, leikmaður Hull, er á góðum batavegi eftir óhugnalegt atvik í 2-0 tapinu gegn Chelsea í gær.

Mason var fluttur með hraði á spítala í gær eftir árekstur við Gary Cahill í leiknum. Mason höfuðkúpubrotnaði og meiðsli hans litu mjög illa út.

Hull staðfesti í gærkvöldi að líðan Mason væri stöðug og félagið kom með fleiri góðar fréttir af gangi mála nú rétt í þessu.

„Ryan er byrjaður að tala um atvikið í gær. Fylgst verður með honum á sjúkrahúsi næstu dagana og félagið verður í góðu sambandi við Ryan, fjölskyldu hans og starfsfólkið á sjúkrahúsinu," sagði í yfirlýsingu Hull.

Cahill og John Terry, fyrirliði Chelsea, mættu á sjúkrahúsið í gærkvöldi til að heilsa upp á Mason og fjölskyldu hans. Í dag mætti Michael Dawson, fyrirliði Hull, á sjúkrahúsið sem og læknir Hull liðsins og einn stjórnarmaður.
Athugasemdir
banner