Queens Park Rangers hefur samþykkt að borga hálfa milljón punda fyrir Sean Goss, 21 árs gamlan miðjumann Manchester United.
Goss kom til United frá Exeter árið 2012 en hann hefur aldrei leikið fyrir félagið.
Leikmaðurinn fæddist í Þýskalandi en hann hefur verið stuðningsmaður Manchester United alla tíð og var honum líkt við Michael Carrick er hann var yngri.
Hann vann titilinn með U-21 árs liði United fyrir tveim árum síðan en mikil meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá stráknum.
Goss komst á varamannabekk Manchester United í nóvember árið 2015.
Athugasemdir