Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 23. janúar 2017 20:30
Kristófer Kristjánsson
West Ham hafnar enn einu tilboðinu í Payet
Payet nennir ekki að vera hjá West Ham.
Payet nennir ekki að vera hjá West Ham.
Mynd: Getty Images
West Ham hefur hafnað þriðja tilboði franska félagsins Marseille í Dimitri Payet en ekki hefur verið gefið fram hversu hátt tilboðið var.

Enska félagið ætlar ekki að selja Payet á minna en 30 milljónir punda og hefur það gengið illa hjá Marseille að koma með tilboð sem þykir ásættanlegt.

Payet vill ólmur fara til Marseille vegna fjölskylduaðstæðna og æfir hann því með U-21 árs liði West Ham sem stendur.

Frakkinn kostaði West Ham rúmar tíu milljónir punda er hann kom til félagsins fyrir tveim árum og skrifaði hann undir langtíma samning í febrúar.

West Ham hefur spilað tvo leiki síðan Payet fór í fýlu og unnið þá báða..
Athugasemdir
banner
banner
banner