Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 23. janúar 2018 15:24
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið kvennalandsliðsins gegn Noregi
Byrjunarlið Íslands.
Byrjunarlið Íslands.
Mynd: KSÍ
Anna Rakel spilar sinn fyrsta landsleik.
Anna Rakel spilar sinn fyrsta landsleik.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
A landslið kvenna mætir Noregi í vináttulandsleik dag á La Manga, Spáni, og hefst leikurinn klukkan 17:00 að íslenskum tíma.

Byrjunarlið Íslands er tilbúið og er ljóst að Anna Rakel Pétursdóttir leikur sinn fyrsta landsleik í dag. Anna leikur með Þór/KA.

Sterka leikmenn vantar í íslenska hópinn en Dagný Brynjarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir eru meðal leikmanna sem ekki eru með á La Manga.

Dagný verður ekki meira með í undankeppni HM þar sem hún á von á barni og Sara er á meiðslalistanum.

Það verður hægt að nálgast beina útsendingu á vefsíðu norska knattspyrnusambandsins.

Byrjunarlið Íslands:
Sandra Sigurðardóttir
Sif Atladóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Anna Björk Kristjánsdóttir
Anna Rakel Pétursdóttir
Svava Rós Guðmundsdóttir
Andrea Rán Hauksdóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Rakel Hönnudóttir
Sandra María Jessen
Fanndís Friðriksdóttir

„Fyrst og síðast erum við að vonast eftir að sjá leikmennina þroskast í nýjum hlutverkum og taka eitt skref fram á við. Leikmenn sem hafa verið inn og út úr hópnum ásamt nýliðum fá stór hlutverk og nýja áskorun," sagði Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari í viðtali á vef KSÍ.

„Við þurfum á því að halda sem lið að leikmenn þroskist hratt á jákvæðan hátt, það er mikið pláss fyrir bætingu hjá okkur, það er skemmtilegt verkefni."

Ísland hefur verið á La Manga síðan á fimmtudaginn síðastliðinn og endar ferð sína þar á að spila við Noreg. Freyr er spenntur fyrir leik dagsins.

„Við nálgumst leikinn á þann hátt að við viljum sjá góða frammistöðu, við höfum undirbúið liðið eins vel og kostur er á ef tekið er inn í samhengið; stutt samvera og árstími. Ef að leikmenn skila góðri frammistöðu og réttu hugarfari þá verð ég ánægður með verkefnið í heild sinni."

„Það breytist aldrei að þegar leikmenn klæðast landsliðsbúningi Íslands þá er um sérstakt stund að ræða, ég hvet leikmenn okkar til þess að njóta stundarinnar, það er gríðarlega mikilvægt."



Athugasemdir
banner
banner
banner