Ítölsku meistararnir í Juventus eru ekki jafn vongóðir og áður um að ná að landa Emre Can miðjumanni Liverpool.
Can verður samningslaus í sumar en hann hefur verið sterklega orðaður við Juventus í marga mánuði. Can er hins vegar einnig að skoða nýtt tilboð frá Livepool.
Can verður samningslaus í sumar en hann hefur verið sterklega orðaður við Juventus í marga mánuði. Can er hins vegar einnig að skoða nýtt tilboð frá Livepool.
„Það er á hreinu að við höfum áhuga á Emre Can og viljum reyna að fá hann til okkar," sagði Beppe Marotta framkvæmdastjóri Juventus.
„Það er hins vgar ekki víst að okkur muni takast ætlunarverkið því í augnablikinu er hann líka með samningstilboð frá Liverpool og hann gæti framlengt þar."
„Það hafa líka önnur félög áhuga á honum."
Athugasemdir