Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 23. janúar 2018 12:37
Elvar Geir Magnússon
Fyrrum leikmaður Hauka tekur við norsku bikarmeisturunum
Lessa á fréttamannafundi.
Lessa á fréttamannafundi.
Mynd: Avaldsnes
Christiane Lessa hefur verið ráðin þjálfari kvennaliðs Avaldsnes í Noregi.

Avaldsnes hefur hafnað í öðru sæti norsku deildarinnar síðustu þrjú ár en vonast er til þess að Lessa muni ná að koma liðinu þrepi hærra. Avaldsnes er bikarmeistari í Noregi.

Lessa spilaði á Íslandi 2005 og 2006, hún lék 17 leiki fyrir Hauka í 1. deild kvenna en þá var hún í herbúðum Fylkis um skamman tíma og lék tvo leiki í Pepsi-deild kvenna.

Hún ólst upp í Brasilíu en hefur starfað við þjálfun í Bandaríkjunum um nokkurt skeið, aðallega í skólaboltanum í Bandaríkjunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner