Kínverska kvennalandsliðið tryggði sér í dag sigur á æfingamóti sem hefur farið fram í Foshan í Kína undanfarna daga.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfar kínverska landsliðið en hann tók við því seint á síðasta ári.
Halldór Björnsson og Dean Martin eru báðir í þjálfarateyminu með Sigurði.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfar kínverska landsliðið en hann tók við því seint á síðasta ári.
Halldór Björnsson og Dean Martin eru báðir í þjálfarateyminu með Sigurði.
Kína lagði Kolumbíu 2-0 í dag og tryggði sér um leið sigur á mótinu. Kína hafði áður unnið bæði Tæland og Víetnam í þessu fjögurra þjóða móti.
Í desember vann Kína lið Suður-Kóreu í Austur-Asíumótinu undir stjórn Sigurðar Ragnar en tapaði gegn bæði Japan og Norður-Kóreu.
Athugasemdir