„Við misstum heimsklassa leikmann og við fengum heimsklassa leikmann," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, á fréttamannafundi í dag þegar hann tjáði sig um skiptin á Henrikh Mkhitaryan og Alexis Sanchez.
„Hversu öflugt verður þetta? Það veltur á frammistöðunni hjá báðum leikmönnum."
„Mkhitaryan hefur hæfileika til að bæta leik okkar með þeim góðu hreyfingum sem hann hefur sem og tæknilegum gæðum."
„Ég tel að hann hafi það sem til þarf sem og gott hugarfar fyrir liðið. Ég er vongóður um að þetta muni virka."
„Hann getur spilað í öllum stöðum, bæði á köntunum og á miðjunni líka. Ég tel að hann sé mjög fjölhæfur og það ætti að hjálpa okkur í að vera öflugir fram á við."
Athugasemdir