Michy Batshuayi, sóknarmaður Borussia Dortmund, lenti í leiðinlegri reynslu að verða fyrir kynþáttafordómum í leik gegn Atalanta í Evrópudeildinni í gær.
„Árið er 2018 og samt heyrast apahljóð úr stúkunni, í alvöru?" skrifar Batshuayi á Twitter.
„Árið er 2018 og samt heyrast apahljóð úr stúkunni, í alvöru?" skrifar Batshuayi á Twitter.
Þetta er ekki nýtt á nálinni hjá stuðningsmönnum Atalanta en stuðningsmönnum liðsins var refsað í janúar fyrir kynþáttaníð í garð Kalidou Koulibaly, varnamanns Napoli. Var Atalanta þá gert að spila heimaleik á bak við luktar dyr.
Því miður er rasismi algengt vandamál á Ítalíu en Batshuayi er með skilaboð fyrir þessa óprúttnu stuðningsmenn.
„Vonandi munuð þið hafa gaman að horfa á Evrópudeildina í sjónvarpinu á meðan við förum áfram."
Batshuayi benti svo fólki að sjá myndina Black Panther sem er nú í sýningahúsum.
2018 and still racists monkey noises in the stands ... really ?! 🤦🏾♂️ hope you have fun watching the rest of @EuropaLeague on TV while we are through 🙊🙈🙉 #SayNoToRacism #GoWatchBlackPanther ✌🏾
— Michy Batshuayi (@mbatshuayi) February 22, 2018
Athugasemdir