Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 23. febrúar 2018 21:39
Ingólfur Stefánsson
Championship: Mikilvægur sigur Hull
Dicko skorar sigurmarkið
Dicko skorar sigurmarkið
Mynd: Getty Images
Hull 1-0 Sheffield United
1-0 Nouha Dicko (55')

Hull vann mikilvægan sigur á Sheffield United í Championship deildinni á Englandi í kvöld.

Hull eru í harðri fallbaráttu en komust með sigrinum þremur stigum frá fallsæti.

Stuðningsmenn Hull eru afar ósáttir með stöðu liðsins og mótmæltu Allam fjölskyldunni sem á liðið á leiknum.

Sheffield United gátu komist upp fyrir Bristol City í umspilssæti með sigri.

Eftir markalausan fyrri hálfleik náði Nouha Dicko að skora fyrir Hull þegar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik eftir sendingu frá Jackson Irvine.

Hull reyndu hvað þeir gátu til að bæta við marki en liðið hefur tapað 22 stigum á tímabilinu eftir að hafa leitt leiki.

Þeir náðu þó að halda út í þetta skipti og ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum. Frábær sigur Hull niðurstaðan.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leeds 38 25 7 6 70 28 +42 82
2 Leicester 38 26 4 8 74 34 +40 82
3 Ipswich Town 38 24 9 5 80 49 +31 81
4 Southampton 37 22 8 7 73 47 +26 74
5 West Brom 39 19 10 10 60 37 +23 67
6 Norwich 39 18 7 14 69 55 +14 61
7 Hull City 38 16 11 11 53 46 +7 59
8 Coventry 38 15 13 10 59 43 +16 58
9 Preston NE 38 16 9 13 49 54 -5 57
10 Middlesbrough 39 16 7 16 53 52 +1 55
11 Cardiff City 39 16 6 17 43 51 -8 54
12 Bristol City 39 14 8 17 43 45 -2 50
13 Sunderland 39 14 7 18 48 45 +3 49
14 Watford 38 12 12 14 53 51 +2 48
15 Swansea 39 12 11 16 48 58 -10 47
16 Plymouth 39 11 11 17 55 62 -7 44
17 Millwall 39 11 11 17 37 51 -14 44
18 Blackburn 38 11 9 18 51 64 -13 42
19 Stoke City 39 11 9 19 35 53 -18 42
20 QPR 39 10 11 18 36 50 -14 41
21 Birmingham 39 10 10 19 42 59 -17 40
22 Huddersfield 39 8 16 15 42 61 -19 40
23 Sheff Wed 39 11 6 22 30 61 -31 39
24 Rotherham 39 3 12 24 30 77 -47 21
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner