Antonio Conte, stjóri Chelsea, hefði ekkert á móti því að sjá Paul Pogba á varamannabekk Manchester United þegar hans menn heimsækja United á Old Trafford á sunnudag.
Pogba var á bekknum gegn Sevilla í Meistaradeildinni í vikunni en átti góða innkomu þar að sögn Jose Mourinho.
Síðustu leikir hafa ekki verið góðir fyrir Pogba en hann gæti snúið aftur í byrjunarliðið gegn Chelsea á sunnudag.
„Við erum að tala um leikmann í hæsta gæðaflokki, frábæran leikmann," sagði Conte aðspurður út í Pogba.

„Ég býst við að sjá hann inn á vellinum, þar er samt betra ef hann verður áfram fyrir utan byrjunarliðið."
Athugasemdir