Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 23. febrúar 2018 19:56
Ingólfur Stefánsson
Lengjubikarinn: HK og FH gerðu jafntefli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK 1-1 FH
1-0 Markaskorara vantar (26')
1-1 Steven Lennon (90')

HK og FH mættust í Lengjubikarnum í kvöld. Liðin mættust fyrr í vetur í Fótbolta.net mótinu og þá höfðu HK-ingar betur 2-1.

HK komust yfir á 39. mínútu í kvöld og leiddu 1-0 í hálfleik.

FH-ingar áttu erfitt með að brjóta vörn HK á bak aftur en Steven Lennon kom inná fyrir Grétar Snæ Gunnarsson á 64. mínútu.

Hann náði að jafna metin í lok leiksins og tryggja FH-ingum jafntefli.

FH-ingar eru með 4 stig eftir fyrstu þrjá leikina í Lengjubikarnum en HK-ingar leita enn að fyrsta sigrinum með 2 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner