Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 23. febrúar 2018 15:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho hrósar Pogba: Tekur suma leikmenn fimm mínútur, tók hann 10 sekúndur
Pogba kom inn á gegn Sevilla. ,,Hann sýndi mikla fagmennsku og sýndi að hann var tilbúinn í að hjálpa liðinu.
Pogba kom inn á gegn Sevilla. ,,Hann sýndi mikla fagmennsku og sýndi að hann var tilbúinn í að hjálpa liðinu.
Mynd: Getty Images
Scott McTominay.
Scott McTominay.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, er ánægður með viðbrögðin sem Paul Pogba hefur sýnt eftir að hafa verið á bekknum gegn Sevilla í Meistaradeildinni í vikunni.

Síðustu leikir hafa ekki verið góðir fyrir Pogba en hann gæti snúið aftur í byrjunarliðið gegn Chelsea á sunnudag.

„Þið sáuð leikinn gegn Sevilla," sagði Mourinho við blaðamenn. „Það er alltaf erfiðara að koma af bekknum en að byrja. Undirbúningurinn er öðruvísi fyrir leikmenn sem byrja."

„Að byrja á bekknum og að koma inn á án þess að fá einhverja viðvörðun um það, þá er erfitt að komast í takt við leikinn. En hann átti mjög jákvæðan leik fyrir okkur."

„Það tekur suma leikmenn fimm mínútur að gera sig klára í að koma inn á. Hann tók 10 sekúndur í það. Hann sýndi mikla fagmennsku og sýndi að hann var tilbúinn í að hjálpa liðinu."

„Hann hefur svarað því af mikilli fagmennsku að vera á varamannabekknum."

Mourinho hefur verið að velja Scott McTominay fram yfir Pogba, en hvað hefur McTominay gert til að sannfæra Mourinho?

„Þú færð ekki traustið hjá mér fyrir ekki neitt. Leikmaðurinn verður að fá stjórann til að treysta honum, svo einfalt er það."

„Stundum lítur það þannig út að við (knattspyrnustjórar) þurfum að gefa allt til leikmanna og þeir gefa okkur ekkert til baka. Ég hugsa ekki þannig. Traustið sem ég sýni Scott, hann hefur unnið fyrir því frá fyrsta degi," sagði Mourinho.

Talið er að Pogba muni koma inn á þriggja manna miðju með Nemanja Matic og McTominay á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner