fös 23. febrúar 2018 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sænskur varnarmaður í Völsung (Staðfest)
Victor Svensson.
Victor Svensson.
Mynd: Völsungur
Penninn er á lofti á Húsavík. Völsungur fékk í gær markvörðinn Aron Dag Birnuson á láni frá KA og í dag var staðfest að sænskur varnarmaður myndi spila með liðinu í sumar.

Varnarmaðurinn heitir Victor Svensson og er 32 ára gamall að aldri. Hann leikur sem miðvörður.

Hann kom til Íslands með unnusti sinni Camillu Johansson sem spilar blak með Völsungi við góðan orðstír.

„Von er á fleiri fréttum af samningamálum á næstunni," segir á heimasíðu Völsungs.

Völsungur endaði um miðja deild í 2. deild karla á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner