Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 23. febrúar 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Leikið fjóra daga í röð
Mynd: Getty Images
Það verður spilað næstu fjóra daga í þýska boltanum og er fyrsti leikur er á dagskrá í kvöld.

Mainz á heimaleik gegn Wolfsburg í fallbaráttunni. Mainz er í fallbaráttusæti og er Wolfsburg með einu stigi meira.

FC Bayern og Hertha Berlin mætast á Stöð 2 Sport 2 á laugardaginn. Bayern er með 19 stiga forystu á toppnum á meðan Hertha er um miðja deild, sjö stigum frá fallsæti og sjö stigum frá evrópudeildarsæti.

Hoffenheim mætir Freiburg, Stuttgart á leik við Eintracht Frankfurt og Aron Jóhannsson og félagar eiga lokaleik laugardagsins gegn Hamburger.

Bayer Leverkusen mætir Schalke í meistaradeildarbaráttunni á sunnudaginn áður en RB Leipzig fær botnlið Köln í heimsókn.

Síðasti leikur helgarinnar er á mánudagskvöldið. Borussia Dortmund tekur þar á móti Augsburg í beinni útsendingu. Alfreð Finnbogason verður ekki með vegna meiðsla.

Föstudagur:
19:30 Mainz - Wolfsburg

Laugardagur:
14:30 FC Bayern - Hertha Berlin (Stöð 2 Sport 2)
14:30 Hannover - Borussia M'Gladbach
14:30 Hoffenheim - Freiburg
14:30 Stuttgart - Frankfurt
17:30 Werder Bremen - Hamburger

Sunnudagur:
14:30 Leverkusen - Schalke
17:00 Leipzig - Köln

Mánudagur:
19:30 Dortmund - Augsburg (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 29 25 4 0 74 19 +55 79
2 Bayern 29 20 3 6 82 36 +46 63
3 Stuttgart 29 20 3 6 67 34 +33 63
4 RB Leipzig 29 17 5 7 67 33 +34 56
5 Dortmund 29 16 8 5 57 34 +23 56
6 Eintracht Frankfurt 29 10 12 7 43 39 +4 42
7 Augsburg 29 10 9 10 47 46 +1 39
8 Freiburg 29 11 6 12 41 52 -11 39
9 Hoffenheim 29 10 6 13 49 57 -8 36
10 Heidenheim 29 8 10 11 42 50 -8 34
11 Gladbach 29 7 10 12 50 56 -6 31
12 Werder 29 8 7 14 36 49 -13 31
13 Union Berlin 29 8 5 16 25 45 -20 29
14 Wolfsburg 29 7 7 15 34 50 -16 28
15 Bochum 29 5 12 12 34 59 -25 27
16 Mainz 29 5 11 13 30 47 -17 26
17 Köln 29 4 10 15 23 51 -28 22
18 Darmstadt 29 2 8 19 28 72 -44 14
Athugasemdir
banner
banner