Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 23. mars 2017 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Pétur Heiðar og Ívar ganga til liðs við Magna (Staðfest)
Pétur Heiðar Kristjánsson.
Pétur Heiðar Kristjánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Pétur Heiðar Kristjánsson og Ívar Sigurbjörnsson eru gengnir til liðs við Magna.

Pétur Heiðar, sem hefur meðal annars leikið fyrir Keflavík og Þór, er miðjumaður sem lék 11 leiki með KA í Inkasso-deildinni síðasta sumar.

Ívar er varnarmaður fæddur 1996 og stóð sig vel með Dalvík/Reyni í 3. deildinni í fyrra, en 2015 spilaði hann 5 leiki fyrir KA.

Magni frá Grenivík leikur í 2. deild. Í fyrra fékk liðið 31 stig úr 22 leikjum og endaði 12 stigum frá því að komast upp um deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner