„Þetta var eins og í bíómynd. Við unnum 1-0 og ég skoraði," sagði Lukas Podolski eftir sigur Þýskalands á Englandi í gærkvöldi.
Podolski var að leika kveðjuleik sinn og hann skoraði eina markið með frábæru langskoti.
„Þetta var eins og í mynd. Þetta var frábær leikur, frábær úrslit og frábær leið til að kveðja."
Podolski var að leika kveðjuleik sinn og hann skoraði eina markið með frábæru langskoti.
„Þetta var eins og í mynd. Þetta var frábær leikur, frábær úrslit og frábær leið til að kveðja."
„Ég fékk gæsahúð eftir móttökurnar sem ég fékk," sagði Podolski en hann var hylltur af stuðningsmönnum Þýskalands.
Podolski skoraði alls 49 mörk í 130 landsleikjum á ferli sínum með Þýskalandi en hér að neðan má sjá markið glæsilega í gær.
Lukas Podolski scored this in his last game for the Germany national team. Quality goal. pic.twitter.com/B1R1Kzxsqd
— Arsenal Related ⚽🔥 (@ArsenalsRelated) March 22, 2017
Athugasemdir