Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. mars 2017 22:32
Ívan Guðjón Baldursson
Undankeppni HM: James tryggði lífsnauðsynlegan sigur
Mynd: Getty Images
Kólumbía 1 - 0 Bólivía
1-0 James Rodriguez ('83)

Kólumbía sótti án afláts gegn Bólivíu í undankeppni HM 2018 fyrr í kvöld.

Heimamenn í Kólumbíu þurftu sigur en boltinn virtist einfaldlega ekki ætla inn þar til á 83. mínútu, þegar Juan Cuadrado fiskaði vítaspyrnu.

James Rodriguez steig á punktinn og lét verja frá sér, en boltinn skoppaði aftur til James sem fylgdi eftir og tryggði sínum mönnum lífsnauðsynlegan sigur.

Fjögur efstu löndin fara beint á HM 2018 en fimmta sætið keppir umspilsleik við lið úr annarri heimsálfu.

Staðan í undankeppninni:
1. Brasilía 27 stig
2. Úrúgvæ 23
3. Kólumbía 21
4. Ekvador 20
5. Síle 20
6. Argentína 19
7. Paragvæ 15
8. Perú 14
9. Bólivía 7
10. Venesúela 5
Athugasemdir
banner
banner
banner