Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 23. mars 2018 19:03
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið kvöldsins: Messi á bekknum gegn Ítalíu
Odion Ighalo gæti reynst erfiður í sumar.
Odion Ighalo gæti reynst erfiður í sumar.
Mynd: Getty Images
Það er mikið af spennandi vináttulandsleikjum að hefjast á næsta klukkutímanum og er hægt að sjá byrjunarlið helstu liða hér fyrir neðan.

Tvö lið úr íslenska riðlinum á HM mæta til leiks í kvöld og eru byrjunarlið þeirra áhugaverð.

Nígería mætir Póllandi og teflir fram afar sterku liði þar sem rándýrir úrvalsdeildarleikmenn eru í lykilhlutverki í sóknarleiknum.

Varnarlína Nígeríu er ekki stjörnum prýdd en allir fyrir framan miðju eru hágæðaleikmenn þar sem Alex Iwobi, Victor Moses og Odion Ighalo fara fremstir í flokki ásamt Kelechi Iheanacho og Wilfred Ndidi.

Lionel Messi er ekki í byrjunarliði Argentínu gegn Ítalíu þar sem Jorge Sampaoli er að prófa nýja leikmenn. Giovani Lo Celso og Manuel Lanzini fá tækifæri á kostnað manna á borð við Paulo Dybala og Mauro Icardi sem voru ekki valdir í hópinn.

Nígería: Uzoho; Abdullahi, Troost-Ekong, Idowu, Balogun; Ndidi, Obi; Iwobi, Iheanacho, Moses; Ighalo


Argentína: Caballero; Bustos, Otamendi, Fazio, Tagliafico; Paredes, Biglia; Lanzini, Lo Celso, Di Maria; Higuain

Ítalía: Buffon; De Sciglio, Rugani, Bonucci, Florenzi; Verratti, Jorginho, Parolo; Chiesa, Insigne; Immobile


Þýskaland: Ter Stegen; Kimmich, Boateng, Hummels, Hector; Khedira, Kroos; Draxler, Ozil, Muller; Werner

Spánn: De Gea; Carvajal, Pique, Ramos, Alba; Thiago, Koke, Iniesta, D.Silva, Isco; Rodrigo


Holland: Zoet, Van Dijk, De Vrij, De Ligt, Hateboer, Wijnaldum, Strootman, Van Aanholt, Promes, Memphis, Dost

England: Pickford; Walker, Gomez, Stones; Trippier, Henderson, Oxlade-Chamberlain, Rose; Lingard, Sterling; Rashford.


Frakkland: Lloris; Sidibe, Varane, Umtiti, Digne; Kante, Matuidi, Lemar; Mbappe, Griezmann; Giroud
Athugasemdir
banner
banner
banner