Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 23. mars 2018 16:08
Magnús Már Einarsson
Egill Darri Makan í FH (Staðfest)
Egill Darri og Ólafur Kristjánsson þjálfari FH.
Egill Darri og Ólafur Kristjánsson þjálfari FH.
Mynd: FH
Egill Darri Makan Þorvaldsson hefur gengið til lið við FH en han kemur frá Breiaðbliki.

Egill Darri er 16 ára gamall hægri bakvörður en hann kemur inn í meistaraflokkshóp FH.

„Við FH-ingar bjóðum Egill Darra velkominn í Kaplakrika," segir á Twitter síðu FH.

Egill skrifaði undir samning við FH sem gildir til ársins 2021.

Faðir hans er Þorvaldur Makan Sigurbjörnsson sem átti farsælan feril á Íslandi og erlendis.

Undanfarin ár hefur Egill spilað samtals tíu leiki með U17 ára landsliði Íslands.
Athugasemdir
banner