Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 23. mars 2018 10:47
Magnús Már Einarsson
Myndir: Bolt æfir með Dortmund
Mynd: Getty Images
Spretthlauparinn Usain Bolt fékk tækifæri til að mæta á æfingu með þýska stórliðinu Borussia Dortmund í dag.

Hinn 31 ár gamli Bolt er fljótasti maður sögunnar en hann hefur oft lýst því yfir að draumur sinn sé að verða atvinnumaður í fótbolta.

Bolt er í samstarfi við Puma líkt og Dortmund og það átti þátt í að hann fékk að æfa með þýska liðinu í dag.

Fyrir æfingu sást Bolt í góðum gír með Mario Gotze og Marco Reus en þeir fóru síðan saman á æfingasvæði þar sem nokkur hundruð áhorfendur voru mættir til að fylgjast með Jamaíkamanninum.

Hér að neðan má sjá Bolt eiga klobba á æfingunni og fyrir neðan eru fleiri myndir frá æfingunni.

Athugasemdir
banner
banner