„Þetta er æðislegt tækifæri og frábært að vera með svona frábærum hóp," sagði Samúel Kári Friðjónsson við Fótbolta.net í vikunni en hann æfir þessa dagana með íslenska A-landsliðinu fyrir vináttuleikinn gegn Mexíkó í Bandaríkjunum í nótt.
„Það var langt ferðalag hingað og fyrsta æfing í gær (á þriðjudaginn) og þetta er allt að koma til," sagði hann en aðspurður hvernig honum litist á verkefnið gegn Mexíkó?
„Það er frábært, í þessum aðstæðum og að spila á móti frábæru liði, það er æðislegt og geðveikt að vera í þessum hópi og sjá hvernig þetta er."
Samúel verður ekki með í leiknum gegn Perú í New York í vikunni því þá verður hann kominn til Belfast í leik með U21 árs landsliðinu gegn Norður Írum.
„Ég verð með í fyrsta leik en svo fljúgum við Albert Guðmundsson til Belfast og verðum með U21 árs liðinu þar sem er bara flott," sagði Samúel Kári sem leikur sem miðjumaður hjá Vålerenga í Noregi.
Athugasemdir