Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 23. mars 2018 12:30
Magnús Már Einarsson
Zlatan keypti heilsíðu til að boða komu sína til LA
Mynd: Getty Images
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic er laus allra mála hjá Manchester United og einungis tímaspursmál er hvenær hann skrifar undir samning hjá LA Galaxy í Bandaríkjunum.

Zlatan ákvað ásamt LA Galaxy að kaupa heilsíðu auglýsingu í Los Angeles Times til að boða komu sína til félagsins.

Zlatan var ekki að eyða mörgum orðum í auglýsinguna eins og sjá má hér að neðan.

„Kæra Los Angeles. Verði ykkur að góðu," sagði Zlatan.

Hér að neðan má sjá auglýsinguna sem birtist í Los Angeles Times í dag.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner