Enginn af sérfræðingunum spáði rétt fyrir um úrslitin í leik Atletico Madrid og Chelsea í gærkvöldi.
Real Madrid og FC Bayern mætast klukkan 18.45 í kvöld og hér er spáin fyrir þann leik.
Real Madrid og FC Bayern mætast klukkan 18.45 í kvöld og hér er spáin fyrir þann leik.
Fótbolti.net (Elvar Geir Magnússon)
Real Madrid 1 - 1 FC Bayern
Vonandi fáum við meira fjör en við fengum í leiknum í gær. Bæjarar hafa ekki verið nægilega sannfærandi að undanförnu en einbeitingin hefur farið algjörlega á Meistaradeildina. Ég spái því að þýska liðið muni komast yfir en Real jafnar í lokin.
Kristján Guðmundsson
Real Madrid 2 - 1 FC Bayern
Ancelotti finnur leiðir til þess að Real sigrar á heimavelli gegn Bayern. Ronaldo er vel hvíldur og setur bæði með dyggri aðstoð Bale sem er að rifna úr sjálfstrausti þessa dagana.
Hjörtur Hjartarson
Real Madrid 3 - 1 FC Bayern
Bayern Gífurlega erfitt að spá fyrir um úrslit í þessum leik. Tvö frábær lið. Hallast að þvi að heimavöllurinn vegi þungt.
Staðan (3 stig fyrir rétt skor - 1 stig fyrir rétt tákn)
Fótbolti.net - 17
Kristján Guðmundsson - 15
Hjörtur Hjartarson - 13
Athugasemdir