Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 23. apríl 2014 23:15
Magnús Már Einarsson
Uppboð: Áritaður Liverpool bolti - Hæsta boð 300 þúsund
Boltinn sem verður boðinn upp.
Boltinn sem verður boðinn upp.
Mynd: .
Boltinn er meðal annars áritaður af Luis Suarez og Steven Gerrard.
Boltinn er meðal annars áritaður af Luis Suarez og Steven Gerrard.
Mynd: .
Hópur fólks í Mosfellsbæ hefur tekið saman höndum um að halda styrktardag fyrir Kára Örn Hinriksson. Dagurinn verður haldinn á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 24. apríl.

Kári er 25 ára gamall og hefur háð grimma baráttu við krabbamein síðan árið 2006 með hléum þó. Alls hefur meinið skotið sér upp fjórum sinnum á þessum tíma og í öll skiptin hefur Kári farið í grimma meðferð, ýmist lyfja eða geisla eða bæði, einnig stórar aðgerðir.

Svo virðist sem það sé ekki fundin leið til til að lækna þessa tegund krabbameins, en Kári má búast við því að það skjóti upp kolinum hvenær sem er og jafnframt hvar sem er, hann hefur sýnt ótrúlegt æðruleysi, baráttuvilja og dugnað í baráttu sinni, hugarfar hans gæti verið mörgum til fyrirmyndar.

Á styrktardeginum verður eftirfarandi dagskrá.
*Golfmót um morguninn þar sem hluti skráningagjalda renna í styrktarsjóðinn
*Afturelding - Hvíti Riddarinn á gervigrasinu á Varmá klukkan 16 þar sem ýmsir viðburðir verða tengdir leiknum
*Tónleikar á veitingastaðnum Hvíti Riddarinn klukkan 20-23 þar sem fram koma ýmsir þekktir listamenn, auk þess sem skemmtiatriði verða á milli tónlistaratriða

Þá verður bolti áritaður af leikmönnum Liverpool (sjá myndir) boðinn upp á Fótbolta.net en allur ágóði rennur í styrktarsjóð Kára. Boltinn er meðal annars áritaður af Luis Suarez og Steven Gerrard sem og fleiri leikmönnum.

Hægt er að bjóða í boltann og fá nánari upplýsingar á netfanginu. [email protected] Óskað er eftir að með tilboðinu fylgi upplýsingar um nafn og símanúmer bjóðanda.

Uppboðinu lýkur klukkan 16:00 fimmtudaginn 24. apríl.

Hæsta boð í dag: 300 þúsund krónur.

Styrktarreikningur Kára er:
Kt.: 211260-3279
Reikningsnúmer: 0315-13-300977
Athugasemdir
banner
banner
banner