Dietmar Hamann, fyrrum miðjumaður Liverpool, telur að Rafa Benítez sé rétti maðurinn fyrir stjórastarfið hjá Manchester United. Benítez er í dag þjálfari Napoli.
Hamann spilaði undir stjórn Benítez og finnst að enska stórliðið ætti að skoða það að ráða Spánverjann.
Hamann spilaði undir stjórn Benítez og finnst að enska stórliðið ætti að skoða það að ráða Spánverjann.
„Þeir þurfa einhvern þjálfara sem hefur unnið titla og veit hvernig á að vinna með stórum leikmönnum. Hann veit hvað þarf til að komast í Meistaradeildina og ná þar árangri," segir Hamann.
Þó Benítez sé í Napoli þá býr fjölskylda hans enn í Englandi.
„Hann hefur alltaf haft það skúrt að hann myndi elska það að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina. Ég held að Arsenal myndi ekki henta honum en Manchester United yrði góður áfangastaður."
„Ef ég væri stuðningsmaður Manchester United myndi ég vilja mann sem ætti sem mestan möguleika á að koma liðinu í Meistaradeildina."
Athugasemdir