Einn leikur fer fram í íslenska boltanum í dag en þá mætast Stjarnan og Valur í undanúrslitum í A-deild Lengjubikars kvenna.
Stjarnan varð Íslandsmeistari síðasta sumar þar sem liðið vann alla leikina í deildinni en Valur hafnaði í öðru sæti.
Það verður því hörkuleikur á Samsung-vellinum í kvöld er liðin mætast í undanúrslitum Lengjubikarsins.
Leikur dagsins:
19:00 Stjarnan - Valur (Samsung-völlurinn)
Athugasemdir