Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 23. apríl 2014 19:01
Elvar Geir Magnússon
Kanchelskis: Skil ekki hvernig Rio og Rafael komast í liðið
Andrei Kanchelskis.
Andrei Kanchelskis.
Mynd: Getty Images
Andrei Kanchelskis, fyrrum vængmaður Manchester United, var í viðtali um stöðuna hjá sínu fyrrum félagi.

„Ég skil ekki hvers vegna Rio Ferdinand og Rafael eru enn í liðinu. Þeir eru ekki í klassa fyrir Manchester United," segir Kanchelskis.

„Það eru ekki allir leikmenn liðsins nægilega góðir fyrir United, sérstaklega í vörninni og á miðjunni."

Kanchelskis telur að Jurgen Klopp væri besti kosturinn fyrir United.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner