Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. apríl 2014 17:55
Magnús Már Einarsson
Kassim Doumbia í FH (Staðfest)
Sam Hewson, Heimir Guðjónsson, Kassim Doumbia og Sean Reynolds.
Sam Hewson, Heimir Guðjónsson, Kassim Doumbia og Sean Reynolds.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH-ingar hafa samið við varnarmanninn Kassim Doumbia frá Malí.

Doumbia var á reynslu hjá FH á dögunum þar sem hann stóð sig vel.

Doumbia lék meðal annars með FH í 6-1 sigri gegn Selfyssingum í æfingaleik.

Hinn 24 ára gamli Doumbia hefur áður spilað með Waasland-Beveren, ASKO, AA Gent og FC Brussels í Belgíu.

FH-ingar hafa verið í leit að miðverði eftir að Freyr Bjarnason og Guðmann Þórisson hurfu á braut í haust en fyrr í vetur kom Sean Reynolds einnig til liðsins frá Bandaríkjunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner